top of page
DSC_0355.jpg

UNGLINGAR
12-17 ÁRA

Meistaraflokkur haust 2022:​

 þri og fim 20:00–21:00 og lau kl. 09:00-10:00

Fullorðnir haust 2022

mið og fös 17:00-18:00 og lau 12:00-13:00

Við bjóðum upp á öflugt æfingaumhverfi fyrir 12–17 ára unglinga. Byrjendur æfa ásamt byrjendum og skemmra komnum fullorðnum (þri, fim og lau). Lengra komnir unglingar æfa í sérstökum meistaraflokki unglinga og deila æfingatíma með meistaraflokki fullorðinna (mán, mið og fös).

Hvort sem þú ert að byrja í karate á unglingsárum eða hefur æft í mörg ár bjóðast mörg spennandi tækifæri. Við hvetjum þig til að setja markið hátt, hvort sem þú stefnir á svart belti, vilt taka þátt í keppni eða auka styrk, liðleika, áræðni og sjálfstraust.

 

Þórshamar býður upp á keppnisþjálfun fyrir unglinga undir handleiðslu reyndra þjálfara. Keppendur félagsins hafa náð frábærum árangri á mótum Karatesambands Íslands og unnið fjölda Íslands- og bikarmeistaratitla, bæði í kumite og kata. Vertu með í næsta sigurliði Þórshamars!

bottom of page